6.020 kr.
Lýsing
Litamaski, rose gold
Hlýr bleikur litur með gylltum undirtónum til notkunar í mjög ljósu og miðlungsljósu hári
Um vöruna
Upplifðu tímabundinn hárlit með þeim kostum sem djúpnæringarmeðferð gefur. Þessi maski, sem er auðveldur í notkun og er fáanlegur í nokkrum litum, gerir þér kleift að prófa þig áfram með tískuliti, auka dýpt þeirra eða lengja líftíma litarins á milli heimsókna á stofuna. Hann inniheldur einnig nærandi efni, svo sem amínósýru, apríkósukjarnaolíu og hina endurbyggjandi ArganID tækni sem veitir hárinu heilbrigðari tilfinningu og útlit. Color Depositing Mask umbúðirnar eru unnar að hálfu leyti úr endurunnu efni og því er þetta kjörin leið til að minnka kolefnissporið með því að nota minni orku.
Aquamarine er kaldur, blár litur til notkunar í mjög ljósu og miðlungsljósu hári. Sökum mikillar dýptar, þá má vera að liturinn endist lengur en aðrir litatónar. Útkoman er einstaklingsbundin og fer eftir ástandi hársins og lit þess. Taktu prófið til að finna þinn fullkomna litatón. Athugaðu að þessi vara er ekki ætluð fyrir gráa litatóna.
Kostir litarins:
- Endurlífgar lit hársins
-
Gefur hárinu aukinn litatón
-
Sérsniðinn hárlitur
-
Tímabundin virkni
Kostir umhirðunnar :
- Djúpnærir
- Eykur mýkt hársins samstundis
- Eykur heilbrigði hársins
- Veitir hárinu eftirtektarverðan gljáa
Hvernig skal nota :
Áður en allt hárið er litað mælum við með því að einn lokkur sé litaður til að ná fram réttum litatóni. Byrjaðu á að velja lítinn lokk til að prófa, helst einhvern sem er vel falinn þegar hárið þitt er náttúrulega greitt. Einangraðu lokkinn og taktu allt annað hár vel frá. Berðu Color Depositing Mask í lokkinn og leyfðu maskanum að liggja í 2-3 mínútur. Hreinsið. Ef liturinn er of daufur, prófaðu þá annan lokk og láttu maskann liggja lengur í.
- Þvoið hárið og berið í rakt hár
- Skiptið hárinu upp og berið vel af maskanum í hárið
- Dreifið vel, gott að nota grófa greiðu
- Biðtími er 5-7 mínútur en það fer allt eftir hversu djúpur liturinn á að vera. Má vera lengur.
- Skolið vel með vatni og mótið svo eins og venjulega
Ráð: Ef þú vilt ná fram pastel áferð, blandaðu þá ¼ hlut af Color Depositing Mask og ¾ hlutum af Moroccanoil® Weightless Hydrating Mask til að mýkja útkomuna.
Athugið: Color Depositing Maskarnir veita hárinu tímabundinn lit sem er hannaður til að renna smám saman úr. Þeim mun ljósara sem hárið er, þeim mun lengur mun liturinn duga. Litaútkoman og líf litarins er líka háð því hversu gljúpt hárið er. Leitaðu ráða hjá fagmanni á hársnyrtistofu ef þú vilt flýta fyrir því að liturinn dofni.
Magn: 200 ml.